30 ára afmæli Ísafjarðarbæjar
1. júní næstkomandi eru liðin 30 ára frá stofnun sveitafélagsins Ísafjarðarbæjar þegar sex sveitafélög sameignuðust undir heiti nýs sveitafélags Ísafjarðarbær. Sveitafélögin sem sameinuðust voru Þingeyrarhreppur, Mýrahreppur, Mosvallahreppur Flateyrarhreppur, Suðureyrarhreppur og Ísafjarðarkaupstaður.
Afmælinu verður fagnað með fjölbreyttri afmælisdagskrá fyrir íbúa og gesti á öllum aldri dagana 29. maí til 1. júní. Boðið verður upp á tónlist, opið hús, fjölskylduviðburði, bíósýningar, sýningar og upplestur víðs vegar um sveitarfélagið. Samhliða afmælishátíðinni er röð menningarviðburða í sundlaugum sveitarfélagsins styrkt af Þjóðminjasafni Íslands og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu í tilefni þess að sundlaugamenning á Íslandi var staðfest á lista UNESCO.
Frítt í allar sundlaugar sveitarfélagsins alla hátíðardagana 29. maí- 1. júní.
Meðal dagskrárliða má nefna opið hús í leikskólanum Sólborg með sýningu á verkum leikskólabarna og gömlum ljósmyndum, myndlist í sundlaugum sveitarfélagsins, bíósýningar fyrir börn, upplestur Eiríks Arnar Norðdahl og afmælissöng nemenda Grunnskólans á Ísafirði á Silfurtorgi.
Á sjálfum afmælisdeginum, mánudaginn 1. júní, verður víða opið hús, meðal annars í Hvestu og öldrunarþjónustukjörnum sveitarfélagsins, í Þjónustumiðstöðinni á Ísafirði(áhaldahús) og á skíðasvæðinu í Tungudal þar sem sýndar verða gamlar ljósmyndir og kynnt framtíðarsýn fyrir svæðið. Þá verður opnuð sýning Ingvars Friðbjarnar Sveinssonar bæjarlistamanns 2025 í Safnahúsinu á Ísafirði og fjölskylduvæn dagskrá verður á Bókasafni Ísafjarðar.
Einnig verða þjálfarar á staðnum við útihreystitæki á Ísafirði, Þingeyri og Suðureyri og leiðbeina gestum um notkun tækjanna og fjölbreyttar æfingar.
Ísafjarðarbær hvetur íbúa og gesti til að taka þátt í hátíðarhöldunum og fagna þessum tímamótum saman. Nánari upplýsingar um einstaka dagskráliði má finna á viðburðasíðu sveitafélagsins.
