Vilt þú vinna í kjördeild í sveitarstjórnarkosningunum?

Yfirkjörstjórn Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir aðal- og varafulltrúum í undirkjörstjórnir kjördeilda á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri vegna sveitarstjórnarkosninganna þann 16. maí 2026. Varamenn eru kallaðir inn ef aðalmenn forfallast.

Kjördeildir eru:

  1. kjördeild í Grunnskólanum á Suðureyri
  2. kjördeild í Grunnskóla Önundarfjarðar á Flateyri
  3. kjördeild í Grunnskólanum á Þingeyri

Vinnutími er kl. 8-19 á kjördag (vaktaskipt með hléum), auk upplýsingafundar með yfirkjörstjórn kl. 18-19 á Ísafirði, föstudaginn 15. maí 2026.

Þau sem áhugasöm eru geta haft samband við Rakel S. Björnsdóttur, þjónustufulltrúa Ísafjarðarbæjar á netfangið postur@isafjordur.is eða í síma 450 8000, með upplýsingum um fullt nafn, kennitölu, síma og netfang.

Greitt er fyrir setu í kjörstjórn.