Vilt þú taka þátt í Veturnóttum 2019?

Veturnætur verða haldnar 24.-27. október 2019. Hátíðin er samansafn menningarviðburða, skemmtana og uppákoma í verslunum, veitingastöðum og stofnunum bæjarins. Að þessu sinni verður myndlist í brennidepli en hverskyns aðrir viðburðir eiga þó sem fyrr heima á dagskránni.
Þeim sem hyggja á viðburðahald er bent á að hafa samband við Tinnu Ólafsdóttur, upplýsingafulltrúa Ísafjarðarbæjar.