Viljayfirlýsing samþykkt um lóð á Ásgeirsgötu 2
20.05.2026
Fréttir
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt viljayfirlýsingu við Hraðfrystihúsið Gunnvöru hf. um úthlutun lóðarinnar að Ásgeirsgata 2 til hafnsækinnar starfsemi. Málið var samþykkt samhljóða á fundi bæjarstjórnar þann 30. apríl.
„Þetta er búið að vera í deiglunni í nokkurn tíma og nú loksins er komið að þessu. Þetta er mjög stórt skref fyrir Ísafjarðarbæ og rennir enn meiri stoðum undir aðstöðu og rekstur viðkomandi fyrirtækis. Þá er þetta afar jákvætt þegar horft er til enn meiri atvinnuuppbyggingar í Ísafjarðarbæ. Það er frábært að sjá hvað lóðirnar í nýsamþykktu deiliskipulagi á Suðurtanga hafa verið eftirsóknarverðar og ljóst að hér ríkir bjartsýni.“ Segir Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri.