Vefsjá fyrir frístundasvæði

Sett hefur verið í loftið vefsjá þar sem hægt er að skoða skipulagssjá og framtíðarsýn fyrir frístundasvæði í Tungudal og Seljalandsdal. Starfshópur um skipulag svæðanna óskar eftir ábendingum og hugmyndum frá íbúum varðandi framtíð og uppbyggingu svæðisins. Ábendingar má senda á postur@isafjordur.is með efnislínunni „Frístundasvæði“.