Ísafjörður: Vatnslaust í Skólagötu

Vatnslaust er í Skólagötu á Ísafirði og einhverjum húsum við Tangagötu sem tengjast inn á lögn í Skólagötu. Viðgerð stendur yfir og er áætlað að henni verði lokið á næstu klukkutímum. 

Vegna yfirstandandi framkvæmda í Skólagötu má gera ráð fyrir því að vatnið detti aftur út tímabundið einhverja næstu daga.