Úthlutun menningarstyrkja 2026

Menningarmálanefnd hefur úthlutað styrkjum Ísafjarðarbæjar til menningarmála fyrir árið 2026. 3,5 milljónir króna voru til úthlutunar að þessu sinni og alls hlutu 18 verkefni styrk.

28 umsóknir bárust í heildina þar sem óskað var eftir samtals 6.459.000 kr.

Verkefnin sem hlutu styrk eru eftirfarandi:

  • Anna María Ragnarsdóttir, f.h. Leikfélags Menntaskólans á Ísafiri, vegna Sólrisuleikrits, kr. 250.000.
  • Ásta Kristin Pjetursdóttir, vegna Sumartónleikaraðar í fjórum kirkjum, kr. 200.000.
  • Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir, f.h. Ísleikhússins, vegna leiksýningar um Simson í tilefni 100 ára afmælis, kr. 250.000.
  • Dagbjört Ósk Jóhannsdóttur, f.h. Fjöllistarhópsins Klossa, vegna jólatónleika, kr. 200.000.
  • Diego Ragnar Angemi, f.h. Kvikmyndaklúbbsins Spólað til baka, vegna sýninga á kvikmyndaperlum 9. og 10. áratugarins, kr. 200.000.
  • Fjölnir Ásbjörnsson, f.h. Maraþonmanna, vegna tónleika fyrir leikskólabörn, kr. 100.000.
  • Greipur Gíslason, f.h. Við Djúpið félag, vegna Við Djúpið tónlistarhátíðar, kr. 250.000.
  • Greta Lietuvninkaité, vegna Write it Out: Reflective Writing Studio, kr. 109.000.
  • Halldóra Jónasdóttir, f.h. Leiklistarhóps Halldóru, vegna leiksýninga þriggja skólabarnahópa, kr. 250.000.
  • Ingi Björn Guðnason, f.h. Edinborgarhússins, vegna viðburðaraðar fyrir börn og fjölskyldur, kr. 200.000.
  • Júlíus Þorfinnsson, f.h. Fjallsins Þorfinnur, vegna ListaVestrisins menningarhátíðar á Flateyri, kr. 216.000.
  • Lísbet Harðar Ólafardóttur, vegna harmónikkuballa í Edinborgarhúsinu, kr. 200.000.
  • Maksymilian Haraldur Frach, vegna Brúar 2026, tónlistar fyrir eldri borgara, kr. 150.000.
  • Marsibil G. Kristjánsdóttir, vegna bókbandsnámskeiða á Þingeyri, kr. 150.000.
  • Steingrímur Rúnar Guðmundsson, f.h. The Pigeon Festival, vegna PIFF alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar á Ísafirði 2026, kr. 250.000.
  • Steinunn Ása Sigurðardóttir, f.h. Hollvinasamtaka Samkomuhússins á Flateyri, vegna Hjarta Flateyrar - viðburðaraðar í Samkomuhúsinu á Flateyri, kr. 200.000.
  • Tinna Ottesen, vegna Bíóteks á Þingeyri, kr. 200.000.
  • Viktor Páll Magnússon, f.h. Leikfélags Flateyrar, vegna leiklistarnámskeiða á Flateyri, kr. 125.000.