Útgáfa fjallskilaseðils í Ísafjarðarbæ 2025

Fjallskilanefnd Ísafjarðarbæjar hefur gefið út fjallskilaseðil fyrir árið 2025.

Nefndin leggur til að smölun fari fram á þann veg að bændur og aðrir fjáreigendur smali eftir niðurröðun í sláturhúsi.

Fyrri leitir verði laugardaginn 20. september og sunnudaginn 21. september 2025. Seinni leitir verði laugardaginn 4. október og sunnudaginn 5. október 2025, eins og ákveðið var á 19. fundi fjallskilanefndar 13. ágúst 2025.

Fé verði ekki sleppt í haga fyrr en eftir 15. október 2025.

Réttardagar árið 2025 eru ákveðnir laugardagurinn 20. september og sunnudagurinn 21. september fyrir fyrri leitir og laugardaginn 4. október og sunnudaginn 5. október fyrir seinni leitir.

Útgáfa fjallskilaseðils

Samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Barðastrandar- og Ísafjarðarsýslur, 14. ágúst 2012, skal hlutaðeigandi sveitarstjórn eða fjallskilanefnd árlega fyrir 20. ágúst, semja fjallskilaseðil þar sem mælt er fyrir um hvernig fjallskilum skuli hagað. Fjallskilaseðill skal berast eigi síðar en 15 dögum áður en fjallskil byrja þar sem kemur fram hvað hver landeigandi á að leggja til fjallskila á því hausti. Skal tilnefna leitarstjóra einn eða fleiri sem stjórni göngum leitarmanna og annist að leitir fari vel og skipulega fram.

Gangna- og réttarstjórar

Lagt er til að eftirtaldir aðilar verði gangna- og réttarstjórar í Ísafjarðarbæ.

Í Skutulsfirði

Hraunsrétt:
Hallgrímur Hjálmarsson
Kirkjubólsrétt:
Steingrímur Jónsson
Arnardalsrétt:
Þorbjörn H. Jóhannesson
Seljalandsdalur
Kristján Þór Kristjánsson

Í Súgandafirði

Keflavík að Seli:
Svavar Birkisson
Frá Seli að Sunddal:
Kristján Bjarni Karlsson
Frá Flateyri fyrir Sauðanes að Sunddal:
Þorvaldur H. Þórðarson.

Í Önundarfirði

Frá Flateyri að Breiðadalsá:
Bernharður Guðmundsson
Frá Breiðadalsá að Vífilsmýrum:
Steinþór Auðunn Ólafsson
Vífilsmýrar að Þórustöðum:
Kristján Óskar Ásvaldsson
Hjarðardalur að Þórustöðum:
Borgar Björgvinsson
Hjarðardalur að Ingjaldssandi:
Guðmundur St. Björgmundsson

Í Dýrafirði, Mýrahreppi hinum forna

Ingjaldssandur:
Elísabet Pétursdóttir
Frá Fjallaskaga um Ytri- Hlíðar, Nesdal og Barða:
Elísabet Pétursdóttir
Frá Fjallaskaga að Alviðru:
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir
Alviðrufjall og Núpsdalur:
Hermann Drengsson og Jón Skúlason
Frá Hvassahrygg að Glórugili:
Jón Skúlason
Frá Glórugili að Höfða:
Hermann Drengsson og Steinþór A. Ólafsson
Höfði að Botnsá:
Sighvatur Jón Þórarinsson og Sæmundur Bjarni Guðmundsson.

Í Dýrafirði, Þingeyrarhreppi hinum forna:

Frá Hvallátursá að Þingeyri:
Ómar Dýri Sigurðsson
Brekkudalur að Kirkjubólsdal:
Sigrún Guðmundsdóttir
Kirkjubólsdalur að Hólum:
Sigrún Guðmundsdóttir
Hólar að Lokinhömrum:
Friðbert Jón Kristjánsson og Kristján Gunnarsson

Í Arnarfirði, Auðkúluhreppi hinum forna:

Lokinhamradalur:
Friðbert Jón Kristjánsson og Sigrún Guðmundsdóttir
Stapadalur og Álftamýri:
Guðmundur G. Guðmundsson.
Bauluhús að Hjallkárseyri:
Guðjón Ingólfsson og Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Hjallkárseyri að varnargarði á Mjólkárhlíð:
Guðjón Ingólfsson og Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Frá Mjólkárhlíð að Ósi:
Sæmundur Bjarni Guðmundsson

Húsráðendur þar sem aðkomufé er rekið til réttar eða húsa skulu tilkynna eigendum þess um það svo fljótt sem auðið er.