Útboð á byggingu fjölnota knattspyrnuhúss samþykkt

Meirihluti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að farið verði í útboð á fjölnota knattspyrnuhúsi á Ísafirði. Samkvæmt mati nefndar um byggingu fjölnota knattspyrnuhúss eru líkur á því að hægt verði að hefjast handa við byggingu hússins sumarið eða haustið 2020 og að það klárist um áramót 2020/2021. Þetta miðar við núverandi tímasetningu og að útboð fari af stað sem fyrst.

Húsið sem nefndin lagði til að verði byggt er 50x70 metra einangrað og upphitað hús. Samkvæmt tillögu verður boðið út á evrópska efnahagssvæðinu með skilyrðum um hámarksverð að upphæð 380.000.000 kr. og að húsinu verði skilað fullbúnu. Lagt er til að í útboðinu verði ákveðin skilyrði um útbúnað, svo sem geymslu, lýsingu, gervigras, hlaupabraut og fleira, en einnig að hægt verði að bjóða í valkvæða eiginleika, svo sem hljóðkerfi, áhorfendabekki og klifurvegg. Útboðsgögn hafa verið útbúin í samstarfi við Ríkiskaup.