Uppfærsla á Þjónustugátt Ísafjarðarbæjar

Þjónustugátt Ísafjarðarbæjar hefur verið uppfærð með það að markmiði að veita aukna rafræna þjónustu til íbúa Ísafjarðarbæjar. 

Þar er hægt að nálgast á rafrænan hátt umsóknir um ýmsa þjónustu sveitarfélagsins á öllum sviðum, s.s. byggingarleyfi, velferðarþjónustu, menningarstyrki og leyfi til hundahalds, auk þess sem starfsmenn geta sent gögn beint til launadeildar. Þar er jafnframt hægt að sjá stöðu eigin mála og nálgast og skrifa undir ýmiss skjöl og samninga við sveitarfélagið, ef svo ber undir.

Nú hefur jafnframt verið uppfærð veita til einstaklinga og fyrirtækja að sjá stöðu eigin reikninga og hreyfingayfirlit, og er hægt að prenta út eða vista gögn vegna þessa beint úr Þjónustugáttinni. 

Þá er hægt að smella á vefsölu Ísafjarðarbæjar og kaupa aðgang í sundlaugar, skíðasvæði, líkamsrækt og á Byggðasafn Vestfjarða og í Skrúð.

Þjónustugátt Ísafjarðarbæjar