Uppfærðar reglur um skólahverfi, umsókn og innritun í grunnskóla Ísafjarðarbæjar

Bæjarstjórn hefur samþykkt uppfærðar reglur um skólahverfi, umsókn og innritun í grunnskóla Ísafjarðarbæjar. Markmið uppfærslunnar er að auka skýrleika reglnanna og gagnsæi, bæta verkla og tryggja jafnræði. Einnig að styrkja stjórnsýsluákvarðanir um flutning milli hverfisskóla og að gera sveitarfélaginu kleift að brefðast við húsnæðisvanda og ójafnvægi í nemendafjölda.

Helstu breytingar frá fyrri reglum eru að nýtt ákvæði hefur verið sett inn um flutning á milli hverfisskóla, með það að markmiði að formgera ferlið og gera það skýrara. Þá hefur upplýsingum um skólahverfaskiptingu verið bætt inn í reglurnar. Einnig eru nú gefin ákveðin tímabil sem hægt er að sækja um flutning á milli skóla. Umsóknir um flutning á haustönn eru afgreiddar í síðasta lagi 1. apríl og umsóknir um flutning á vorönn þann 1. október.

Að síðustu má nefna að í reglunum er nú heimild til að hafna flutningsbeiðni milli skóla í sveitarfélaginu, ef húsnæði eða aðstæður eru takmarkandi þáttur.

Reglur um skólahverfi, umsókn og innritun í grunnskóla Ísafjarðarbæjar