Umhverfisstofnun: Kynningarfundur um þjóðgarð á sunnanverðum Vestfjörðum

Mynd: Umhverfisstofnun
Mynd: Umhverfisstofnun

Umhverfisstofnun auglýsir rafrænan kynningar - og umræðufund um nýjan þjóðgarð á Vestfjörðum, en tillaga að friðlýsingarskilmálum þjóðgarðsins er nú í auglýsingu.

Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 19. maí og hefst kl. 17:30. 

Freyja Pétursdóttir og Edda Kristín Eiríksdóttir munu flytja erindi þar sem fjallað verður um allt sem tengist friðlýsingunni, t.d. friðlýsingarferlið sjálft, vinnu samstarfshópsins, svæðið og verndargildi þess ásamt tækifærum sem geta skapast með friðlýsingum og áhrif þeirra á nærsamfélög.

Í kjölfar erindisins verður tekið á móti spurningum.

Hlekkur á rafrænan kynningarfund

Viðburðurinn á Facebook