Tilnefningar til bæjarlistamanns Ísafjarðarbæjar

Beata Joó, bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar 2018
Beata Joó, bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar 2018

Atvinnu- og menningarmálanefnd óskar eftir tilnefningum til bæjarlistamanns Ísafjarðarbæjar 2019.

Listamenn sem hafa búið í Ísafjarðarbæ um tveggja ára skeið koma til greina sem bæjarlistamenn Ísafjarðarbæjar. Tilnefningunni skulu fylgja rök fyrir því hvers vegna viðkomandi listamaður ætti að hljóta nafnbótina.

Tekið er við tilnefningum til og með 21. júní n.k. á netfangið isafjordur@isafjordur.is.

Bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar verður útnefndur á Act Alone, Suðureyri, 10. ágúst n.k.