Tillaga lögð fram um breytingar á leikskólastarfi í Ísafjarðarbæ
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að leggja fyrir bæjarstjórn tillögu um breytingar á leikskólastarfi í sveitarfélaginu. Tillagan felur í sér að rekstri leikskólans Tanga verði hætt frá og með 8. júlí 2026 og að börn fædd 2021 haldi áfram í sínum heimaleikskólum og ljúki leikskólagöngu sinni þar.
Breytingin er ekki enn endanlega samþykkt og verður tekin til umfjöllunar á fundi bæjarstjórnar 1. apríl 2026. Þar sem dagskrá fundarins verður birt mánudaginn 30. mars nk. telur Ísafjarðarbær mikilvægt að foreldrar, starfsfólk og aðrir hagaðilar fái skýrar upplýsingar áður en málið fer í opinbera umræðu.
Helstu atriði tillögunnar
- Rekstri leikskólans Tanga ljúki frá og með 8. júlí 2026.
- Börn fædd 2021 verði áfram í leikskólunum Sólborg og Eyrarskjóli, þar sem þau eru þegar í sterkum tengslum við starfsfólk og önnur leikskólabörn.
- Til að mæta rýmisþörf verði settar upp færanlegar leikskólaeiningar við báða leikskóla.
- Einingarnar eru fullbúnar fyrir leikskólastarf og uppfylla allar kröfur samkvæmt reglugerðum.
- Einingarnar eru hugsaðar sem tímabundin lausn á meðan unnið er að langtíma skipulagi leik- og grunnskóla í Skutulsfirði.
Ástæður tillögunnar
Tillagan byggist á faglegum og fjárhagslegum rökum.
Fagleg rök
- Samfella í leikskólagöngu stuðlar að vellíðan, öryggi og betri námsárangri barna.
- Börn haldast í þekktu umhverfi með starfsfólki og venjum sem þau þekkja vel.
- Minni hætta er á röskun í starfi vegna manneklu.
- Samfelld þjónusta styrkir faglega eftirfylgni og stuðning við börn með sérþarfir.
Fjárhagsleg rök
- Betri og skilvirkari nýting mannauðs og húsnæðis leikskóla Ísafjarðarbæjar.
- Ábyrgar rekstrarlausnir án skerðingar á gæðum leikskólastarfs.
Næstu skref
Bæjarstjórn mun fjalla um málið á fundi sínum 1. apríl 2026. Foreldrar, starfsfólk og samfélagið allt verða upplýst um niðurstöðuna um leið og hún liggur fyrir. Verði tillagan samþykkt mun hefjast skipulögð innleiðingarvinna í nánu samstarfi við leikskólastjóra og starfsfólk leikskólanna.