Tilkynnt um bæjarlistamann á skólasetningu TÍ

Bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar 2020 verður útnefndur á skólasetningu Tónlistarskólans á Ísafirði sem fram fer í dag, mánudag, kl. 18. Vegna fjöldatakmarkana verður athöfninni streymt á Facebook-síðu TÍ og mun streyminu einnig vera deilt á Facebook-síðu Ísafjarðarbæjar.