Ísafjörður: Þrýstingsfall á vatnskerfi

Vegna mikils álags hefur orðið þrýstingsfall á vatnskerfinu á neðri bæ Ísafjarðar frá Túngötu niður á Suðurtanga í dag, fimmtudaginn 16. júlí. Gert er ráð fyrir að vatnsþrýstingur verði kominn í eðlilegt horf um klukkan 17.

Við biðjum íbúa velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir sýndan skilning.