Þjónustuhús afhent á Þingeyri

Nýtt og glæsilegt þjónustuhús á tjaldsvæðinu á Þingeyri verður formlega afhent Ísafjarðarbæ klukkan 15 á laugardag. Að afhendingu lokinni verður þeim sem vilja boðið að skoða húsið í bak og fyrir og þiggja kaffi og kleinur.

Húsið er 58 fermetra timburhús, byggt af Vestfirskum verktökum og þykir nokkuð öruggt að útsýni úr stórum gluggum þess muni vekja athygli ferðamanna.