Þingeyri: Lokað fyrir vatnið 8. október

Uppfært kl. 19:45:

Því miður gengur erfiðlega að tengja vatnið, nú er gert ráð fyrir að ekki verði opnað aftur fyrir vatn fyrr en á miðnætti. Beðist er afsökunar á þeim vandræðum sem þetta getur haft í för með sér. 

Vatnstruflanir halda því miður áfram á Þingeyri, en vegna tengivinnu verður lokað fyrir vatnið í eftirfarandi kl. 16 í dag, miðvikudaginn 8. október:

  • Hafnarstræti
  • Vallargata
  • Hafnarsvæði
  • Sundlaug

Gert er ráð fyrir að opnað verði fyrir vatnið aftur kl. 20.

SMS hefur verð sent til íbúa í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar.

Til að skrá númer þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum á 1819 og velja Mín skráning undir Minn aðgangur. Þar er hægt að setja inn eða uppfæra símanúmer og heimilisfang.