Þingeyri: Íbúar beðnir um að takmarka vatnsnotkun

 Íbúar Þingeyrar eru beðnir um að fara sparlega með vatnið í dag, mánudaginn 23. ágúst. Öryggi í dæluskúr brann yfir og á meðan unnið er að viðgerð eru íbúar beðnir um að takmarka vatnsnotkun eins og hægt er. Tilkynning verður send til íbúa þegar óhætt verður að skrúfa frá af fullum krafti á ný.