Tendrunum og torgsölu aflýst

Í ljósi áframhaldandi samkomutakmarkana og óvissu um hvað tekur við eftir 9. desember hefur verið ákveðið að aflýsa skemmtunum vegna tendrunar jólaljósa og torgsölunni í ár.

Við vonum að íbúar njóti aðventunnar og undirbúnings jólanna á þessum skrítnu tímum og bendum um leið á að á covid.is má nú finna leiðbeiningar um það sem hafa þarf í huga yfir hátíðarnar.