Sveitarstjórnarkosningar 2026: Framboðsfrestur og móttaka framboðsgagna
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Ísafjarðarbæ, sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026, rennur út föstudaginn 10. apríl 2026, kl. 12:00 á hádegi. Kosið verður til bæjarstjórnar í Ísafjarðarbæ. Framboðslistar skulu hafa borist yfirkjörstjórn Ísafjarðarbæjar áður en fyrrgreindur framboðsfrestur rennur út.
Yfirkjörstjórn mun þann 10. apríl hafa aðsetur í fundarsal bæjarstjórnar á 2. hæð í Stjórnsýsluhúsinu að Hafnarstræti 1 Ísafirði, frá klukkan 11:00 til 12:00 og veita þar framboðsgögnum viðtöku. Öll framboð skulu tilkynnt skriflega til yfirkjörstjórnar eigi síðar en klukkan 12:00 á hádegi þann dag.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja framboðum:
- Tilkynning um framboð, þar sem fram koma upplýsingar um heiti stjórnmálasamtakanna og listabókstaf þeirra.
- Hyggist stjórnmálasamtök sem ekki hafa skráðan listabókstaf samkvæmt auglýsingu um listabókstafi stjórnmálasamtaka nr. 54/2025 í B-deild Stjórnartíðinda, bjóða fram lista skulu þau um leið og framboðslista er skilað til yfirkjörstjórnar leggja þar fram beiðni um úthlutun listabókstafs og staðfestingu á heiti framboðs.
- Upplýsingar um hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans, ásamt samþykki þeirra.
- Framboðslisti, ásamt skriflegri yfirlýsingu allra þeirra sem á listunum eru um að þeir hafi gefið samþykki sitt fyrir því að nöfn þeirra séu á listunum, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift.
- Gæta skal þess að tilgreina með skýrum hætti fullt nafn frambjóðanda, kennitölu hans og lögheimili, þannig að enginn vafi leiki á því hver sé í kjöri.
- Sniðmát að framboðslista til rafrænnar undirritunar eða útfyllingar á pappír.
- Yfirlýsing um stuðning við listann frá kjósendum í sveitarfélaginu – meðmæli.
- Framboðslistunum skal fylgja skrifleg yfirlýsing frá kjósendum í Ísafjarðarbæ um stuðning, að lágmarki 40 og að hámarki 80 meðmælendur. Hver kjósandi má einungis mæla með einum lista við hverjar kosningar. Frambjóðendur geta ekki verið meðmælendur eigin framboðs. Kjörstjórnarmenn í landskjörstjórn, yfirkjörstjórnum og umdæmiskjörstjórnum geta ekki vera meðmælendur framboðs.
- Rafræn meðmælasöfnun í Ísafjarðarbæ.
- Hægt er að taka skýrslu út úr meðmælakerfinu og skila með eða tiltaka ef meðmælum var safnað rafrænt.
- Frekari upplýsingar um meðmælasöfnun.
Nánari upplýsingar um söfnun meðmæla og skil framboða og framboðslista má finna í reglugerð nr. 254/2024 og þá má einnig finna nánari upplýsingar og eyðublöð vegna skila á framboðum á vef landskjörstjórnar.
Kjörstjórnin mun á sama stað halda fund með umboðsmönnum framboðslista mánudaginn 13. apríl klukkan 12 til þess að úrskurða um framboð og listabókstafi.
Ef einhverjar spurningar vakna geta framboð sett sig í samband við yfirkjörstjórn sveitarfélagsins, Kristínu Henrysdóttur formann, í síma 823 2078, eða landskjörstjórn á postur@landskjorstjorn.is eða í síma 540-7500.
- Yfirkjörstjórn Ísafjarðarbæjar -
Kristín Henrysdóttir formaður
Guðný Stefanía Stefánsdóttir
Jóhanna Oddsdóttir