Sundlaugin á Þingeyri lokuð vegna leka

Laugarkarið í sundlauginni á Þingeyri lekur og er unnið að því hörðum höndum að komast til botns í því hvað veldur svo hægt sé að gera við lekann.

Á meðan er sundlaugin sjálf lokuð um óákveðinn tíma en opið er í pottana og alla aðra aðstöðu íþróttamiðstöðvarinnar eins og venjulega.