Sundhöllin opnar á ný
Sundhöll Ísafjarðar opnar á ný fyrir sundgesti laugardaginn 21. mars kl. 10, eftir framkvæmdir sem staðið hafa yfir síðustu vikur. Unnið hefur verið að endurbótum á aðstöðu og búnaði.
Sundhöll Ísafjarðar er elsta laug bæjarins, 16 metra innilaug byggð strax eftir seinna stríð. Við laugina er einn heitur pottur og kalt kar. Þann 1. febrúar síðastliðinn fagnaði Sundhöll Ísafjarðar 80 ára afmæli og hvetjum við fólk til að líta við í dag föstudaginn 20. mars kl. 14-18 af því tilefni. Gestum verður boðið að þiggja kaffi og kökur og skoða sundhöllina eftir endurbætur.
Við hvetjum íbúa og gesti til að skella sér í laugina, taka nokkra sundspretti, njóta heita pottsins eða slaka á.
Hérna má sjá opnunartíma laugarinnar
Mánudagur: 7-8 og 16-21
Þriðjudagur: 7-8 og 16-21
Miðvikudagur: 7-8 og 16-21
Fimmtudagur: 7-8 og 18-21
Föstudagur: 7-8 og 16-21
Laugardagur: 10-17
Sunnudagur: 10-17