Sundlaugarkar Sundhallar Ísafjarðar lokað tímabundið
Leiðrétting: Komið hafa fram nýjar upplýsingar um að verktaki hafi fengið afhenta gallaða málningu frá birgja. Framleiðandi er með málið til skoðunar. Beðist er afsökunar á orðavali um að röng málning hafi verið notuð.
Sundlaugarkar Sundhallar Ísafjarðar að Austurvegi lokar tímabundið frá og með þriðjudeginum 28. apríl í 7–10 daga.
Sundlaugargestir hafa mögulega orðið varir við grænan lit í lauginni, en nauðsynlegt er að mála laugina að nýju eftir að í ljós kom að ekki hafði verið notuð rétt málning við fyrri framkvæmdir.
Af þeim sökum verður sundlaugarkarinu lokað á meðan laugin er tæmd og máluð upp á nýtt. Á meðan á framkvæmdum stendur verða sána og heitir pottar áfram opnir og gestir velkomnir að nýta þá aðstöðu.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.