Suðureyri: Vatn flæddi inn í íþróttahús, sundlaug og grunnskóla

Mikið vatn flæddi inn í íþróttahús, tengibyggingu og sundlaug Suðureyrar með tilheyrandi tjóni í veðrinu sem gengið hefur yfir Vestfirði undanfarinn sólarhring og hefur því sundlaug og íþróttahúsi verið lokað. Í grunnskólanum flæddi vatn inn í kjallarann.

Unnið hefur verið að vatnshreinsun í dag og hefur það gengið vel. Ekki er búið að meta tjónið en verður það gert á næstu dögum. Auglýst verður sérstaklega þegar íþróttamannvirkin opna aftur.