Suðureyri: Pottar og líkamsrækt opna aftur mánudaginn 20. júlí

Vinna við hreinsun á íþróttamannvirkjum á Suðureyri eftir vatnstjónið sem þar varð í síðustu viku gengur vel. Heitir pottar og líkamsrækt opna aftur frá og með mánudeginum 20. júlí. Hreinsun stendur enn yfir á sundlauginni og verður hún áfram lokuð í einhverja daga í viðbót.