Uppfærð frétt: Suðureyri - lokað fyrir vatn á Eyrargötu vegna viðgerðar - þriðjudag 5. ágúst
04.08.2025
Fréttir
Uppfært: Viðgerð hefur tekið lengri tíma en vonast var eftir. Vatnslaust verður áfram á Eyrargötu 1-5 Suðureyri fram eftir kvöldi.
Lokað verður fyrir vatnið í Eyrargötu á Suðureyri, húsum nr. 1-5, þriðjudaginn 5. ágúst, frá kl. 8 og fram eftir degi, vegna viðgerðar.
SMS hefur verð sent til íbúa í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar.
Til að skrá númer þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum á 1819 og velja Mín skráning undir Minn aðgangur. Þar er hægt að setja inn eða uppfæra símanúmer og heimilisfang.