Styrkur til greiðslu fasteignagjalda félagasamtaka

Ísafjarðarbær óskar eftir umsóknum um styrki til félaga- og félagasamtaka til greiðslu á fasteignagjöldum skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Umsóknirnar skulu berast til þjónustuvers Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði, eða á netfangið postur@isafjordur.is. Styrkurinn er að hámarki 130.000 krónur og er umsóknarfrestur t.o.m. fimmtudagsins 28. febrúar 2019.

Bent er á reglur Ísafjarðarbæjar um styrki til félaga- og félagasamtaka til greiðslu á fasteignagjöldum og umsóknareyðublað sem fylla þarf út og skila með umsókn ásamt umbeðnum gögnum.