Stuðningur við ólympíufara

Ísafjarðarbær styður við tvo ólympíufara Dag Benediktsson og Örnu Sigríði Albertsdóttir skíðagöngufólk.

Dagur tók þátt fyrir hönd Íslands á Vetrarólympíuleikunum sem fóru fram dagana 6.-22. febrúar 2026. Dagur ólst upp á Ísafirði og hefur alla sína tíð keppt fyrir hönd Skíðafélags Ísfirðinga. Arna Sigríður Albertsdóttir tók þátt á Vetrar Paralympics sem fóru fram dagana 6.-16. mars 2026. Arna er skíðagöngukona og uppalin í starfi Skíðafélags Ísfirðinga, hún er fyrsta konan til að keppa fyrir hönd Íslands á leikunum í skíðagöngu. Auk þess er hún fyrsti kvenkyns keppandinn til að keppa fyrir Ísland á Sumar- og Vetrar Paralympics.

Þátttaka þeirra á Ólympíuleikum er einstakur áfangi fyrir Skíðafélag Ísfirðinga, Ísafjarðarbæ og samfélagið allt auk þess að vera mikil hvatning fyrir ungt fólk í íþróttum á svæðinu. Til að sýna þessum íþróttamönnum stuðning og þakklæti fyrir framlag þeirra til samfélagsins er lagt til að bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykki að veita hvoru þeirra styrk að fjárhæð 1.000.000 kr. Að vera afreksíþróttamaður er afar kostnaðarsamt. Slík þátttaka krefst mikillar fjárfestingar í ferðum, búnaði, æfingaaðstöðu, sérhæfðri þjálfun og fleira. Þá bætist við mikill ferðakostnaður innanlands og erlendis vegna æfinga og móta.

Styrkurinn er því hugsaður sem stuðningur við þau verkefni sem Dagur og Arna Sigríður standa frammi fyrir í sinni afreksþjálfun.