Stóri plokkdagurinn – sunnudaginn 26. apríl
22.04.2026
Fréttir
Stóri plokkdagurinn verður haldinn með pompi og prakt um allt land sunnudaginn 26. apríl næstkomandi. Íbúar í öllum byggðakjörnum Ísafjarðarbæjar eru hvattir til að taka þátt og plokka í sínu nærumhverfi.
Hægt verður að sækja plokkpoka í öllum sundlaugum sveitarfélagsins á opnunartíma. Mælum með að vera með tvo poka, einn fyrir plast og hinn fyrir allt annað.
Fullum pokum má skila við grenndargáma í hverjum byggðakjarna, þar sem þeir verða sóttir og fjarlægðir mánudagsmorguninn eftir plokkdaginn, þ.e. 27. apríl.
Þá eru sekkir með salti við grenndargáma í öllum byggðakjörnum, og við Þjónustumiðstöðina á Ísafirði.
Plokkum saman í okkar nærumhverfi og hjálpumst til við að halda bænum okkar hreinum.