Stóri plokkdagurinn á laugardag

Stóri plokkdagurinn er á morgun, laugardag, sem er einmitt líka Dagur umhverfisins. Bæjarbúar eru hvattir til að taka þátt í hreinsun og fegrun síns nærumhverfis.

Terra umhverfisþjónusta fer með gáma yfir á Þingeyri, Flateyri og Suðureyri þar sem skila má úrgangi úr plokkinu. Gámarnir verða staðsettir yfir daginn þar sem gámabíllinn stoppar venjulega. Íbúar í Hnífsdal og á Ísafirði geta skilað úrgangi í Funa.

Nokkur góð ráð til plokkara sem byggja á ráðum Terra:

  • Útvega sér ruslapoka, hanska og plokktöng. Gott er að nota glæra poka poka til að hægt sé að sjá með einföldum hætti hvað leynist í pokunum.
  • Hægt er að endurvinna efni á borð við pappa og plast sé það þurrt og laust við matarleifar. Þá þarf hins vegar að halda því aðskildu og koma því í viðeigandi farveg.
  • Klæða sig eftir aðstæðum.
  • Virða samkomubannið og gæta að tveggja metra reglunni.
  • Gæta fyllstu varúðar og láta nálar og aðra hættulega hluti vera. Ef nálar finnast er hægt að tilkynna það til lögreglunnar.