Starfshópur um skipulag og starfsumhverfi í leikskólum Ísafjarðarbæjar settur á fót

Stofnaður hefur verið starfshópur sem falið er að greina og skoða skipulag og starfsumhverfi í leikskólum Ísafjarðarbæjar og leggja fram tillögur að breytingum á skipulagi leikskólastarfs sem leitt geta til framtíðarumbóta og stöðugleika í starfsumhverfi barna og starfsfólks leikskóla.

Starfsfhópurinn heyrir beint undir skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd og eru verkefni hans meðal annars að:

  • Greina núverandi stöðu leikskólastarfs með tilliti til gæða faglegs starfs, starfsánægju og stöðugleika í starfsumhverfi bæði barna og starfsfólks.
  • Skoða nýtingu leikskólaplássa og meta mögulegar leiðir til breytinga á núverandi skipulagi leikskólastarfs.
  • Greina íbúafjölda með tilliti til fjölgunar barna frá 12 mánaða í Ísafjarðarbæ næstu fimm árin með tilliti til núverandi innviða.
  • Útfæra og sammælast um tillögur sem lagðar verða fyrir skóla-, íþrótta-, og tómstundanefnd Ísafjarðarbæjar.

Hugmynd um stofnun starfshópsins var rædd á 456. fundi fræðslunefndar þann 14. september 2023 og þann 23. nóvember lagði nefndin til við bæjarstjórn að skipa starfshópinn.

Í minnisblaði um tillöguna kemur fram að miklar breytingar hafi átt sér stað í starfsumhverfi leikskóla á undanförnum árum, meðal annars með tilkomu nýrra kjarasamninga, styttingu vinnuvikunnar og með inntöku barna niður í 12 mánaða aldur.

Í minnisblaðinu segir einnig: „Almenn ánægja er með fyrirkomulag vinnustyttingar í leikskólum Ísafjarðarbæjar en vissulega hefur álagið aukist á móti að mati leikskólastjórnenda. Veikindi starfsfólks í leikskólum eru tíðari en á öðrum stofnunum sveitarfélagsins og erfitt hefur reynst að ráða nýtt fólk til starfa á haustin. Nauðsynlegt er að bregðast við þessari þróun til að efla leikskólana enn frekar, bæta starfsumhverfi, stöðugleika og öryggi barna og starfsfólks.“

Fulltrúar í starfshópnum eru:

Finney Rakel Árnadóttir

Bæjarfulltrúi

Í

Nanný Arna Guðmundsdóttir

Bæjarfulltrúi

Í

Helga Björk Jóhannsdóttir

Leikskólastjórnandi

 

Hildur Sólmundsdóttir

Leikskólakennari

 

Sigríður Brynja Friðriksdóttir

Fulltrúi ófaglærðra starfsmanna

 

Kristrún Halla Gylfadóttir

Fulltrúi foreldra

 

Tara Óðinsdóttir

Fulltrúi foreldra

Starfshópurinn skal ljúka störfum fyrir lok maí 2024, en fyrr ef því verður komið við.

Erindisbréf