Slökkvitækjaþjónusta slökkviliðs flutt í Hafnarhúsið

Slökkvitækjaþjónusta Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar hefur verið flutt tímabundið af slökkvistöðinni í Hafnarhúsið, Suðurgötu 8 á Ísafirði. Gengið er inn frá Einarsgötu. Opið er alla virka daga frá 10 til 12.

Skrifstofur slökkviliðsins hafa einnig verið fluttar tímabundið og eru nú í húsnæði Regus, í gamla Landsbankanum, Pólgötu 1 á Ísafirði.