Skrifstofa bæjarstjóra og sviðsstjóra á Flateyri, Þingeyri og Suðureyri
Bæjarstjóri og sviðsstjórar Ísafjarðarbæjar verða með skrifstofur sínar á Flateyri, Þingeyri og Suðureyri þrjá mánudaga í mars. Íbúar geta bókað tíma eða kíkt við í óformlegt spjall.
Flateyri mánudagur 9. mars 2026
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri og Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs verða á svæðinu þennan dag.
- 13:30-14:30 Heimsókn og spjall í Félagsmiðstöð eldri borgara á Bryggjukaffi
- 14:30-16:00 Viðtalstímar í Skúrinni
Þingeyri mánudagur 16. mars 2026
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir Bæjarstjóri, Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs, Axel Överby sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs, Bryndís Ósk Jónsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs og Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs verða á svæðinu þennan dag.
- 13:30-14:30 Heimsókn og spjall í Félagsmiðstöð eldri borgara á Tjörn
- 14:30-16:00 Viðtalstímar í Blábankanum
Suðureyri mánudagur 23. mars 2026
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri, Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs, Axel Överby sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs, Bryndís Ósk Jónsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs og Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs verða á svæðinu þennan dag.
- 13:30-14:30 Heimsókn og spjall í Félagsmiðstöð eldri borgara í Sunnuhlíð
- 14:30-16:00 Viðtalstímar á kaffihúsi Fisherman
Hægt er að bóka fundatíma með einstökum starfsmanni með því að senda tölvupóst á viðkomandi.
Sigríður Júlía sigridurjulia@isafjordur.is
Margrét margret@isafjordur.is
Hafdís hafdisgu@isafjordur.is
Axel axelov@isafjordur.is
Bryndís bryndis@isafjordur.is