Skíði og sund í vetrarfríinu

Vetrarfríin eru að bresta á í skólum landsins og því verður aukinn opnunartími á skíðasvæðinu í Tungudal næstu daga.

Skíðasvæðið í Tungudal:
17. febrúar: 14-21
18. febrúar: 14-19
19. febrúar: 10-16
20. febrúar: 10-16
21. febrúar: 14-20
22. febrúar: 14-20
23. febrúar: 14-20
24. febrúar: 14-21
25. febrúar: 14-19
26. febrúar: 10-16
27. febrúar: 10-16
Upplýsingar um færi, skíðaleigu og gönguskíðasvæðið eru á vef skíðasvæða Ísafjarðarbæjar, www.dalirnir.is.

Sundhöll Ísafjarðar verður einnig opin aðeins lengur um helgina svo skíðagarpar geti skellt sér í sund að loknum degi á dölunum.

Sundhöll Ísafjarðar:
19. febrúar: 10-18
20. febrúar: 10-18
Að öðru leyti gildir venjulegur opnunartími.