Sinfó í sundi á Þingeyri og Ísafirði

Sundlaugin á Þingeyri og Sundhöll Ísafjarðar taka þátt í landsviðburðinum Sinfó í sundi föstudaginn 29. ágúst klukkan 20:00, þegar Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur tónleikana Klassíkin okkar í Eldborg í Hörpu.

Á Sinfó í sundi verður sent beint út frá tónleikunum á sundstöðum um allt land. 

Þetta er í tíunda sinn sem Klassíkin okkar fer fram og að þessu sinni er yfirskriftin Söngur lífsins. Á tónleikunum flytja margir af fremstu söngvurum landsins tónlist sem tengist hinum ýmsu athöfnum og viðburðum á lífsleiðinni; frá tregafullum kvöldsöngvum til glaðværra gamansöngva.

Einsöngvarar eru Dísella Lárusdóttir, Eggert Reginn Kjartansson, GDRN, Ólafur Kjartan Sigurðarson Pálmi Gunnarsson, Rebekka Blöndal og Valdimar Guðmundsson. Söngsveitin Fílharmónía mun einnig taka lagið. Það er Bjarni Frímann Bjarnason sem heldur um tónsprotann og kynnar eru Halla Oddný Magnúsdóttir og Guðni Tómasson.