Sérreglur bæjarstjórnar um úthlutun byggðakvóta 2025/2026 samþykktar

Innviðaráðuneytið hefur samþykkt tillögur bæjarstjórnar um sérstök skilyrði (sérreglur) vegna úthlutunar byggðakvóta fyrir Ísafjörð, Hnífsdal, Þingeyri, Flateyri og Suðureyri fyrir fiskveiðiárið 2025/2026.

Samþykkt var að reglurnar yrðu með sömu breytingum og bæjarstjórn lagði til, og samþykkt var, á síðasta fiskveiðiári.

Meginefni breytinganna er að afla sé úthlutað til fiskiskipa sem hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, eða frístundaveiðileyfi, að miðað verði við að fiskiskip séu í eigu/leigu einstaklinga/lögaðila með heimilisfang í sveitarfélaginu, í stað þess að krafist sé lögheimilis í ákveðnu byggðarlagi, og að löndun og vinnsla sé í sveitarfélaginu, en ekki tilteknu byggðarlagi.

Tillögurnar voru sendar ráðuneytinu 16. janúar síðastliðinn og birtar á vef þess í samræmi við reglugerð. Íbúum og hagsmunaaðilum gafst færi á að senda inn athugasemdir áður en ráðuneytið tók ákvörðun.

Ráðuneytið hefur farið yfir fyrirliggjandi gögn, rökstuðning sveitarstjórnar og aðstæður í viðkomandi byggðarlögum. Í kjölfarið hefur það fallist á að allar framlagðar sérreglur séu málefnalegar, byggðar á staðbundnum sjónarmiðum og í samræmi við lög um stjórn fiskveiða.

Auglýsing um staðfestar sérreglur fyrir öll fimm byggðarlögin verður send til birtingar í Stjórnartíðindum á næstu dögum. Að birtingu lokinni mun Fiskistofa auglýsa byggðakvótann til umsóknar í samræmi við gildandi reglur og samþykktar sérreglur.

Bæjarstjórn fagnar niðurstöðunni og telur að samþykkt sérreglnanna styrki stoðir sjávarútvegs og atvinnulífs í byggðarlögunum.