Samfélagssáttmáli – í okkar höndum

Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa gefið út samfélagssáttmála sem allir Íslendingar eru hvattir til að fara eftir til að tryggja áfram góðan árangur í baráttunni gegn COVID-19.

„Tryggjum góðan árangur áfram og gerum samfélagssáttmála. Sáttmála sem gildir í vor og sumar og við munum öll virða.

  • Þvoum okkur um hendur
  • Sprittum hendur
  • Munum 2 metra fjarlægð
  • Sótthreinsum sameiginlega snertifleti
  • Verndum viðkvæma hópa
  • Hringjum í heilsugæsluna ef við fáum einkenni
  • Tökum áfram sýni
  • Virðum sóttkví
  • Virðum einangrun
  • Veitum áfram góða þjónustu
  • Miðlum traustum upplýsingum
  • Verum skilningsrík, tillitssöm, kurteis og styðjum hvert annað


Við erum öll almannavarnir – og verðum það áfram