Rafræn skil skjala- og málakerfis Ísafjarðarbæjar

Hinn 10. mars 2025 tóku formlega gildi rafræn skil skjala frá stjórnsýslu Ísafjarðarbæjar. Með þessu skrefi hefur sveitarfélagið tekið upp rafræna varðveislu gagna í samræmi við ný lög og tilmæli Þjóðskjalasafns Íslands, sem kveða á um að varðveisla rafrænna gagna verði meginregla og pappírsútprentun hætt.

Skjalastjóri og sviðsstjóri á stjórnsýslu- og fjármálasviði unnu að undirbúningi verkefnisins í samvinnu við Héraðsskjalasafnið á Ísafirði. Meðal annars var formleg tilkynning send inn þann 10. desember 2024 um rafrænt gagnasafn hjá stjórnsýslu sveitarfélagsins. Gagnaumsýsla fer nú fram í kerfinu OneCRM frá One Systems Ísland.

Í tengslum við tilkynninguna var málalykill sveitarfélagsins til næstu fimm ára uppfærður, ný skjalavistunaráætlun gerð og notendahandbók fyrir starfsfólk útbúin. Einnig voru lögð fram tæknigögn frá hugbúnaðarframleiðanda í samræmi við kröfur laga og reglugerða.

Samþykki Héraðsskjalasafns fyrir rafrænum skilum barst 8. mars 2025.