Rafræn meðmælendasöfnun í Ísafjarðarbæ
03.03.2026
Fréttir
Yfirkjörstjórn Ísafjarðarbæjar hefur opnað fyrir rafræna meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar á vef Ísland.is Stofna meðmælasöfnun vegna framboðs til sveitarstjórnar | Ísland.is
Mælst er til þess að oddvitar framboða stofni söfnun en nafn þeirra og fæðingardagur birtist sem stofnandi söfnunar.
Einnig er heimilt að safna meðmælum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður en frumritum meðmælanna er skilað inn ásamt framboðstilkynningu. Hér er sniðmát að söfnun meðmæla á pappír sem framboð geta nýtt sér.
Hægt er að mæla með framboðum hér Mæla með framboði í sveitarstjórnarkosningum 2026 | Ísland.is
Yfirkjörstjórn Ísafjarðarbæjar