Óskað eftir tilboðum í verkið: Ísafjarðarhöfn - yfirborðsefni

Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið „Ísafjarðarhöfn - yfirborðsefni“.

Dagsetning opnunar er 10. apríl 2026.

Verkefnið felst í að steypa göngustíga frá nýju aðkomusvæði fyrir gesti skemmtiferðaskipa í átt að miðbæ og safnasvæði við Neðstakaupstað.

Helstu stærðir eru:

  • Steypa 154 m³
  • Hellulögn 70 m²
  • Umferðarkantsteinn 190 m
  • Steyptar gönguleiðir 1760 m²

Verkinu skal vera að fullu lokið 1. ágúst 2026. Hluta verksins skal þó vera lokið 1. júní 2026.

Útboðsgögn verða til afhendingar hjá Verkís, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði frá og með 20. mars 2026. Þeir sem vilja fá útboðsgögn afhent skulu senda ósk um það á netfangið aj@verkis.is.

Tilboðin verða opnuð hjá Verkís í Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1, Ísafirði, 3. hæð, 10. apríl 2026 klukkan 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.