Óskað eftir tilboðum í verkið endurnýjun þakkants á Torfnesi

íþróttahúsið á Torfnesi.
íþróttahúsið á Torfnesi.

Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í endurbætur á þakkanti íþróttahússins á Torfnesi. 

Helstu verkþættir eru eftirfarandi:

  • Rif á klæðningu og krossvið 142 m2
  • Rif á krossvið undir þakkant 192 m2
  • Endurnýja krossvið framan á og undir þakkant 350 m2.
  • Klæða þakkant með trapisuklæðningu 142 m2
  • Mála undir þakkant 192 m2

Gögn verða afhent í tölvupósti frá og með 27. febrúar 2026.

Vinsamlega sendið tölvupóst á ebi@efla.is og óskið eftir gögnum.

 

Helstu dagsetningar:

 - Verðfyrirspurn auglýst: 27. febrúar.2026

-  Lokadagur fyrirspurna: 5. mars.2026

-  Skilafrestur tilboða: 9. mars. 2026 kl. 11:00