Örugg augu: minnum íbúa á að sækja gleraugun

Almyrkvi á sólu

Nú styttist í almyrkva á sólu sem verður miðvikudaginn 12. ágúst 2026. Íbúar Ísafjarðarbæjar eru í einstakri aðstöðu þar sem þeir geta fylgst með almyrkvanum frá heimili sínu eða í nærumhverfi sínu. Deildarmyrkvi hefst á Ísafirði um kl. 16:43 og almyrkvinn nær hámarki kl. 17:44. Almyrkvinn sjálfur varir í um eina og hálfa mínútu en sólmyrkvinn stendur yfir í um tvær klukkustundir.

Örugg augu – minnum íbúa á að sækja gleraugun

Gríðarlega mikilvægt er að nota öryggisvottuð sólmyrkvagleraugu þegar horft er á sólmyrkva. Þannig er hægt að koma í veg fyrir augnskaða sem í versta falli getur orðið varanlegur.

Allir íbúar Ísafjarðarbæjar fá sólmyrkvagleraugu að gjöf. Gleraugun verða afhent á Bókasafni Ísafjarðar, í sundlaugum Ísafjarðarbæjar og á bæjarskrifstofunni í stjórnsýsluhúsinu fram að almyrkvanum, á opnunartíma viðkomandi staða.

Athugið: Upphaflega var miðað við að afhendingu sólmyrkvagleraugna lyki 3. júlí. Því hefur verið breytt og verða gleraugun áfram afhent á Bókasafni Ísafjarðar, í sundlaugum Ísafjarðarbæjar og á bæjarskrifstofunni fram að almyrkvanum, á opnunartíma viðkomandi staða.

Notkun sólmyrkvagleraugna

Notum sérstök sólmyrkvagleraugu eða síur til að fylgjast með.

Venjuleg sólgleraugu eru ekki örugg til að horfa beint í sólina.

  • Örugg sólmyrkvagleraugu eru með sérstökum síum sem draga úr hættulegri útfjólublárri og innrauðri geislun og minnka birtu sólarinnar niður á öruggt stig.

  • Sólmyrkvagleraugu þurfa að vera vottuð og merkt alþjóðlega öryggisstaðlinum ISO 12312-2 og þú þarft að ganga úr skugga um að þau virki. Það er hægt að gera með því að bera þau upp að ljósi til að athuga hvort þau séu rispuð, með rifu eða gati.

  • Nota þarf gleraugun í öllum deildarmyrkva, bæði fyrir og eftir almyrkva.

  • Aðeins á meðan almyrkvi stendur yfir, þegar tunglið hylur sólina að fullu, er öruggt að taka þau af í stutta stund. Setjið þau aftur upp um leið og einhver hluti sólarinnar verður sýnilegur.

Horft með hléum

Þegar þú ætlar að fylgjast með almyrkva setur þú gleraugun fyrst á þig, horfir í nokkrar sekúndur og lítur síðan undan. Þetta ferli er síðan hægt að endurtaka en alltaf gera hlé inn á milli.

Frekari upplýsingar

Heimild Öryggi og augnheilsa | Ísland.is

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar má finna á upplýsingasíðu Ísafjarðarbæjar um almyrkvann og á  upplýsingagátt stjórnvalda um almyrkva 2026.