Opnir fundir vegna endurskoðunar á menntastefnu Ísafjarðarbæjar

Endurskoðun á núgildandi menntastefnu Ísafjarðarbæjar stendur yfir og af því tilefni er boðað til opinna funda í öllum byggðakjörnum sveitarfélagsins.

Fundirnir eru mikilvægur liður í endurskoðuninni og er ætlað að gefa öllum íbúum tækifæri til að móta nýja stefnu og koma sínum áherslum á framfæri. 

Fundirnir fara fram:

Þingeyri: 9. mars kl. 17:00-19:00, Grunnskólinn á Þingeyri
Flateyri: 10. mars kl. 19:30-21:30, Grunnskóli Önundarfjarðar
Suðureyri: 11. mars kl. 17:00-19:00, Grunnskólinn á Suðureyri
Ísafjörður: 12. mars kl. 17:00-19:00, Grunnskólinn á Ísafirði

Dagskrá

1. Opnun fundarins – Nanný Arna Guðmundsdóttir, formaður skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar
2. Skólastarfið og framtíðin, samtal og ígrundun – Sverrir Óskarsson, sérfræðingur í menntamálum
3. Hópavinna um nýja menntastefnu og áherslur
4. Samantekt á hópavinnu og næstu skref