Opnir fundir um Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050
Kynningartillaga Svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050 er nú komin í Skipulagsgátt þar sem hún verður opin til umsagnar fram til 7. apríl. Sveitarfélögin átta á Vestfjörðum hafa samþykkt tillöguna en á kynningartímabilinu er kallað eftir athugasemdum frá Vestfirðingum og öðrum hagaðilum. Svæðisskipulagsnefnd mun síðan fara yfir athugasemdir og leggja til breytingar eftir því sem við á í samráði við sveitarfélögin, áður en lokatillaga verður lögð fram.
Kynningartillaga Svæðisskipulags Vestfjarða verður til umfjöllunar á opnum fundum sem hér segir:
24. febrúar: Félagsheimilið á Hólmavík
25. febrúar: Edinborgarhúsið á Ísafirði
26. Febrúar: Félagsheimili Patreksfjarðar
Fundirnir hefjast klukkan 17:00 og eru öllum opnir.
Vinna við gerð svæðisskipulags fyrir Vestfirði í heild sinni hófst haustið 2023 er Svæðisskipulagsnefnd var komið á fót. Í maí 2024 voru haldnir samráðsfundir um alla Vestfirði þar sem íbúum var boðið að borðinu til að hafa áhrif á innihald skipulagsins og tóku fjölmörg þátt í þeirri vinnu. Í júní í fyrra var kynnt til umsagnar svokölluð vinnslutillaga, sem byggði á efni íbúafundanna og margvíslegum greiningum og efni sem unnið var á þeim tíma. Unnið var úr umsögnum og lögð upp tillaga sem sveitarstjórnir á Vestfjörðum samþykktu að auglýsa nú í desember síðastliðnum.
Tillagan sem nú liggur fyrir í Skipulagsgátt er því niðurstaða af viðtæku íbúasamráði og greiningarvinnu, og nú er hægt er að gera athugasemdir sem áður segir til og með 7. apríl 2026.
Nánar: