Opinn fundur um þróun og framtíðahorfur íbúðarmarkaðar á Vestfjörðum

Mánudaginn 10. nóvember verður haldinn opinn fundur um þróun og framtíðahorfur íbúðarmarkaðar á Vestfjörðum.

Fundurinn verður haldinn í Edinborgarhúsinu, Aðalstræti 7 á Ísafirði, kl. 12 og er opinn öllum. Að fundinum standa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Tryggð byggð – Samstarfsvettvangur um húsnæðisuppbyggingu á landsbyggðinni og Vestfjarðarstofa.

Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stöðu innleiðingar nýs viðmóts byggingarleyfa og næstu skref við þróun viðmótsins.

Dagskrá

  • Staðan í Ísafjarðarbæ
    Axel R. Överby, sviðsstjóri umhverfis og eignasviðs Ísafjarðarbæjar
  • Íbúðauppbygging og framtíðarhorfur
    Jón Örn Gunnarsson, sérfræðingur húsnæðisáætlana hjá HMS
  • Byggingarleyfi á Íslandi – allt á einum stað
    Dagný Geirdal, verkefnastjóri Mannvirkjaskrár hjá HMS

Húsið opnar kl. 11:45 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.