Opinn fundur um menntastefnu Vestfjarða

Boðað er til opins fundar vegna vinnu við menntastefnu Vestfjarða.

Fundurinn verður haldinn á sal Grunnskólans á Ísafirði miðvikudaginn 5. október og hefst kl. 15:00.

Gerð menntastefnu fyrir Vestfirði er samstarfsverkefni Vestfjarðastofu, Menntaskólans á Ísafirði, Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og Háskólaseturs Vestfjarða. Verkefnið er eitt af áherslumálum í Sóknaráætlun Vestfjarða, þar sem mikil áhersla er lögð á hækkun menntunarstigs Vestfjarða. Markmið verkefnisins er að greina stöðu, strauma og stefnur til að móta sameiginlega framtíðarsýn og aðgerðaáætlun um hvernig megi efla skólastarf frá leikskóla til háskóla.

Samfélagsbreytingar eru að verða á Vestfjörðum vegna bættra samgangna og breytinga í atvinnulífi. Takast þarf á við áskoranir vegna breytinga í samsetningu íbúa, fjölgunar íbúa af erlendum uppruna, vegna loftslagsbreytinga og breytinga sem tengjast fjórðu iðnbyltingunni. Skoða þarf strauma og stefnur í samhengi við sviðsmyndir um mögulega þróun atvinnulífs og mannlífs.

Öll þau sem hafa áhuga á menntamálum erum velkomin og hvött til að taka þátt.

Facebook-viðburður