Opið hús um tillögur að baðstað á Hvítasandi í landi Þórustaða
21.04.2026
Fréttir
Opið hús verður haldið um skipulagsbreytingar og framkvæmdir vegna fyrirhugaðra sjóbaða á Hvítasandi í landi Þórustaða í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, mánudaginn 4. maí 2026 kl. 17:00 til 19:00.
Dagskrá:
-
Skipulagsfulltrúi Ísafjarðarbæjar, Erla Margrét Gunnarsdóttir og Hrafnhildur Brynjólfsdóttir, skipulagsfræðingur hjá Eflu, fara yfir þær skipulagstillögur sem eru í kynningu, forsendur þeirra, markmið og tilgang.
-
Runólfur Ágústsson og Áslaug Guðrúnardóttir, forsvarsfólk Hvítasands, kynna verkefnið.