Opið fyrir umsóknir í styrktarsjóð Hafna Ísafjarðarbæjar 2026

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr styrktarsjóði Hafna Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2026.

Markmiðið með sjóðum er að styrkja og bæta bæjarbraginn og eru í ár 8 milljónir til úthlutunar.

Sjóðurinn er þrískiptur þar sem styrkja skal viðburðahald, samfélagsverkefni eða fegrunarverkefni sem efla samfélagið í Ísafjarðarbæ.

  • Viðburðir: Styrkjum er úthlutað til einstakra viðburða, eða raða viðburða sem haldnir eru í Ísafjarðarbæ árið 2026. Viðburðir mega fara fram á öllum tíma dags og öllum tímum árs. Ekki er krafa um að viðburðir séu þátttakendum að kostnaðarlausu en ókeypis viðburðir njóta forgangs.
  • Fegrunarverkefni: Verkefni sem miða að fegrun og bættu umhverfi í Ísafjarðarbæ. T.d. vegglist, umhverfislist, bættar merkingar húsa og fyrirtækja. Undir þetta fellur ekki almennt viðhald fasteigna.
  • Samfélagsverkefni: Uppbyggjandi og jákvæð verkefni sem nýtast samfélaginu. Styrkjunum er ætlað að styðja við framtak hópa og einstaklinga sem stuðla að farsæld, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi. Svo sem starfsemi opinna frjálsra félagasamtaka sem vinna í almannaþágu árið um kring.

Ekki eru veittir styrkir til rekstrar‐ og stofnkostnaðar, eða til endurbóta í fyrirtækjum, þ.m.t. á eignum.

Hægt er að sækja um styrk að hámarki 800.000 kr. Ekki er krafist mótframlags frá umsækjanda.

Umsóknarfrestur er til 15. apríl kl. 16:00.

Sótt er um í gegnum vefform:

Umsóknareyðublað