Ólöf Dómhildur nýr upplýsingafulltrúi Ísafjarðarbæjar

Ólöf Dómhildur hefur tekið til starfa sem upplýsingafulltrúi Ísafjarðarbæjar. Ólöf Dómhildur hefur verið búsett á Ísafirði frá árinu 2012.

Ólöf Dómhildur útskrifaðist með B.A. gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2006, lauk námi ljósmyndun frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 2008 og hlaut M.A. gráðu í hagnýtri menningarmiðlun árið 2015.
Á árunum 2022-2026 starfaði Ólöf sem kennari á lista-og nýsköpunarbraut Menntaskólans á Ísafirði, þar sem hún sinnti kennslu, sviðstjórn, fjölbreyttum verkefnum meðal annars Vörumessu og sat í gæðaráði. Frá árinu 2012 hefur hún starfaði hún kennslu í Grunnskólanum á Ísafirði, unnið sem verkefnastjóri og rekstrarstjóri í Edinborgarhúsinu, tekið þátt í nefndarstörfum hjá Ísafjarðarbæ og sinnt ýmsum félagstörfum.

Við bjóðum Ólöfu Dómhildi hjartanlega velkomna til starfa.